Um uppfærslur símahugbúnaðar
Haltu símanum í takti við tímann – uppfærðu hugbúnað símans til að
fá nýja og betri eiginleika. Uppfærsla hugbúnaðarins getur einnig
bætt afköst símans.
Mælt er með því að öryggisafrit sé tekið af persónulegum gögnum
áður en hugbúnaður símans er uppfærður.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni
er lokið og tækið hefur verið endurræst.
Við notkun þjónustu eða niðurhal efnis getur þurft að hlaða niður
miklu gagnamagni og greiða fyrir gagnaflutning.
Áður en uppfærslan er ræst skaltu tengja hleðslutækið eða ganga úr
skugga um að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu.
Að uppfærslunni lokinni er ekki víst að leiðbeiningarnar í notenda
handbókinni séu gildar. Uppfærða notendahandbók er að finna á
www.nokia.com/support.
87