
Öryggi
Lesið þessar einföldu leiðbeiningar.
Sé þeim ekki fylgt getur það verið
hættulegt eða varðað við lög. Nánari
upplýsingar er að finna í notenda
handbókinni.
SLÖKKT Á TÆKINU Á
AFMÖRKUÐUM
SVÆÐUM
Slökkva skal á tækinu þar sem notkun
farsíma er bönnuð eða þar sem hún
kann að valda truflunum eða hættu, til
dæmis um borð í flugvélum, á
sjúkrahúsum eða nærri
lækningatækjum, eldsneytisstöðvum,
efnaverksmiðjum eða svæðum þar
sem verið er að sprengja. Farðu eftir
leiðbeiningum á afmörkuðum
svæðum.
UMFERÐARÖRYGGI
GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum
lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar
til að stýra ökutækinu við akstur.
Umferðaröryggi skal ganga fyrir í
akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið
næm fyrir truflunum, sem getur haft
áhrif á virkni þeirra.
VIÐURKENND
ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja
upp eða gera við þessa vöru.
VERNDAÐU HEYRN ÞÍNA
Til að koma í veg fyrir
hugsanlegan heyrnarskaða skal ekki
hlusta á háum hljóðstyrk í lengri tíma.
Farðu með gát þegar þú heldur tækinu
nálægt eyranu þegar kveikt er á
hátalaranum.
Leiðbeiningar fyrir tiltekna
eiginleika
1
Mikilvægt: Þetta tæki er
aðeins ætlað til notkunar með
venjulegu SIM-korti (sjá mynd). Ef
ósamhæf SIM-kort eru notuð gæti
það skaðað kortið eða tækið og gæti
skemmt gögn sem vistuð eru á
kortinu. Fáðu upplýsingar hjá síma
fyrirtækinu um notkun SIM-korta með
mini-UICC straumloka.
2
Viðvörun: Þegar flugsniðið er
virkt er ekki hægt að hringja eða svara
símtölum, þar á meðal
neyðarsímtölum, eða nota aðra
valkosti þar sem þörf er á tengingu við
93

símkerfi. Eigi að hringja skal ræsa
annað snið.
3 Í tækinu kunna að vera innri og
ytri loftnet. Forðast skal óþarfa
snertingu við loftnetið þegar verið er
að senda eða taka á móti. Snerting við
loftnet hefur áhrif á sendigæði og
getur valdið því að tækið noti meiri
orku og getur minnkað líftíma
rafhlöðu þess.
Aðeins skal nota samhæf minniskort
sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki. Ósamhæf minniskort
gætu skaðað kortið og tækið og
skemmt gögn sem vistuð eru á
kortinu.
Tækið styður microSD-kort sem eru
allt að 32 GB að stærð.
Mikilvægt: Ekki fjarlægja
minniskortið þegar verið er að nota
það í forriti. Það gæti skaðað kortið og
tækið og skemmt gögn sem vistuð eru
á því.
4
Mikilvægt: Forðast skal að
rispa snertiskjáinn. Aldrei skal nota
penna, blýant eða aðra oddhvassa
hluti á snertiskjánum.
Ef hlusta skal á útvarpið þarf að tengja
samhæft höfuðtól við tækið.
Höfuðtólið virkar sem loftnet.
Félagsnet er þjónusta á vegum þriðja
aðila en ekki Nokia. Athugaðu
persónuverndarstillingar net
samfélagsins sem þú notar, þar sem
verið getur að þú deilir upplýsingum
með stórum hópi fólks. Notkunar
skilmálar netsamfélagsins gilda um
samnýtingu upplýsinga í viðkomandi
þjónustu. Kynntu þér notkunar
skilmála og gagnaleynd þjónustunnar.
Nettenging þarf að vera til staðar til að
hægt sé að fá aðgang að
netsamfélögum. Þetta kann að fela í
sér mikinn gagnaflutning og kostnað
tengdan honum. Hafðu samband við
þjónustuveituna til að fá frekari
upplýsingar um gagnaflutningsgjöld.
Samskiptaforritið Communities er
hugsanlega ekki tiltækt á öllum
svæðum. Aðeins þeir eiginleikar sem
eru studdir af netsamfélaginu eru
tiltækir.
5 Hægt er að senda textaskilaboð
sem eru lengri en stafafjöldi í einum
skilaboðum leyfir. Lengri skilaboð eru
send sem tvö eða fleiri skilaboð.
Þjónustuveitan tekur hugsanlega
gjald í samræmi við það.
94

Stafir sem nota kommur, önnur tákn
eða valkosti sumra tungumála taka
meira pláss og takmarka þann
stafafjölda sem hægt er að senda í
einum skilaboðum.
6 Ef hluturinn sem settur er í
margmiðlunarskilaboð er of stór fyrir
símkerfið getur tækið minnkað hann
sjálfkrafa.
7 Aðeins samhæf tæki geta tekið á
móti og birt margmiðlunarskilaboð.
Skilaboð geta litið mismunandi út eftir
tækjum.
8 Við notkun þjónustu eða niðurhal
efnis getur þurft að hlaða niður miklu
gagnamagni og greiða fyrir
gagnaflutning.
Myndskilaboð geta litið mismunandi
út eftir tækjum.
Ekki skal tengja vörur sem senda frá
sér merki þar sem slíkt getur skemmt
tækið. Ekki skal stinga spennugjafa í
samband við Nokia AV-tengið. Ef ytra
tæki eða höfuðtól önnur en þau sem
Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki eru tengd við Nokia AV-
tengið skal gæta sérstaklega að
hljóðstyrknum.
Mikilvægt: Áður en staðsetning er
samnýtt skal ávallt athuga vel hverjir
fá aðgang að upplýsingunum. Athuga
skal persónuverndarstillingar
félagsnetsins sem notað er, því að
hugsanlegt er að fjöldi manns fái
aðgang að upplýsingunum.
9 Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta
liðið nokkrar mínútur þar til
hleðsluvísirinn birtist eða þar til hægt
er að hringja.
Mundu að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum.
Til að slökkva á tilkynningum frá
netsamfélagsforritum skaltu velja
Tilkynningar > > stillingar á
forritaskjánum.
Sérþjónusta og kostnaður
Tækið er samþykkt til notkunar á
WCDMA 850, 900, 1700, 1900, 2100
og HSPA/EGSM 850, 900, 1800, 1900
MHz kerfi . Til að nota tækið þarf
áskrift hjá þjónustuveitu.
Notkun tiltekinna aðgerða og niðurhal
á efni í tækið krefst nettengingar og
greiða gæti þurft fyrir gagnaflutning.
Við sumar aðgerðir þarf stuðning frá
símkerfinu og áskrift að þeim kann að
vera nauðsynleg.
Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið,
rafhlöðuna, hleðslutækið og allan
95

aukabúnað. Eftirfarandi leiðbeiningar
hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
•
Hvorki skal nota tækið á
rykugum eða óhreinum stöðum
né geyma það þar. Hreyfanlegir
hlutir og rafrænir hlutar þess
geta skemmst.
•
Ekki skal geyma tækið á heitum
stað. Hátt hitastig getur dregið
úr endingu tækisins, skemmt
rafhlöðuna og undið eða brætt
plastefni.
•
Ekki skal geyma tækið á köldum
stað. Þegar tækið hitnar upp að
eðlilegu hitastigi getur raki
myndast innan í því og hann
getur skemmt rafrásir.
•
Ekki skal reyna að opna tækið
öðruvísi en tilgreint er í
notendahandbókinni.
•
Óleyfilegar breytingar geta
skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga um
senditæki.
•
Tækinu skal ekki henda, ekki
skal banka í það eða hrista það.
Óvarleg meðferð getur skemmt
innri rafrásaspjöld og búnað.
•
Aðeins skal nota mjúkan,
hreinan og þurran klút til að
hreinsa yfirborð tækisins.
•
Ekki skal mála tækið. Málning
getur fest hreyfanlega hluti og
komið í veg fyrir að þeir vinni
rétt.
•
Af og til skal slökkva skal á
tækinu og fjarlægja rafhlöðuna
til að það virki sem best.
•
Haltu tækinu frá seglum eða
segulsviðum.
•
Til að varðveita mikilvægar
upplýsingar skaltu vista þær á
a.m.k. tveimur stöðum, s.s. í
tækinu þínu, á minniskorti eða í
tölvu, eða skrifa niður
mikilvægar upplýsingar.
Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað.
Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef
grunur leikur á að tæki vinni ekki rétt
skal fara með það til næsta
viðurkennda þjónustuaðila.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum,
rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi
sorp- og endurvinnslustöð. Þannig
geturðu dregið úr óflokkaðri
sorplosun og stuðlað að endurvinnslu.
Kynntu þér hvernig hægt er að
96

endurvinna Nokia-vörur á
www.nokia.com/recycling.
Merki sem sýnir yfirstrikaða
ruslafötu
Merkið sem sýnir yfirstrikaða
ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni,
bæklingnum eða umbúðunum táknar
að fara verður með allan rafbúnað og
rafeindabúnað, rafhlöður og
rafgeyma á sérstaka staði til förgunar
að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa
á við innan Evrópusambandsins.
Hendið þessum vörum ekki með
heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar
um umhverfismál er að finna í Eco-
lýsingu vörunnar á www.nokia.com/
ecoprofile.
Um stafræn réttindi
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum
lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna
höfundarréttar geta hindrað afritun,
breytingu eða flutning mynda,
tónlistar og annars efnis.
Eigendur efnis kunna að nota
mismunandi gerðir stafrænnar
réttindatækni (DRM) til að vernda
hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar
mismunandi gerðir stafrænnar tækni
til að opna stafrænt varið efni. Í þessu
tæki er hægt að opna efni sem er varið
með OMA DRM 2.0 & 2.1. Ef tiltekinn
stafrænn hugbúnaður nær ekki að
verja efni geta efniseigendur beðið
um að hæfni slíks hugbúnaðar til að
opna nýtt efni sem er varið með
stafrænni réttindatækni sé
afturkölluð. Með afturköllun er einnig
hægt að hindra endurnýjun á þannig
vernduðu efni sem þegar er í tækinu.
Afturköllun slíks hugbúnaðar hefur
ekki áhrif á notkun efnis sem er varið
með öðrum gerðum stafrænna
réttinda eða notkun efnis sem ekki er
varið með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum
réttindum (DRM) fylgir leyfi sem
tilgreinir hvernig hægt er að nota
efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni
skal nota öryggisafritunarvalkostinn í
Nokia Suite til að taka öryggisafrit af
bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir
flytji leyfin sem þarf að endurstilla
með OMA DRM-vörðu efni, til þess að
hægt sé að nota það eftir að minni
97

tækisins hefur verið forsniðið. Einnig
gæti þurft að endurstilla leyfin ef
skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni
glatast það efni ásamt leyfum þess ef
minni tækisins er forsniðið. Einnig
gætu leyfin og efnið glatast ef skrár í
tækinu skemmast. Glatist leyfin eða
efnið getur það takmarkað
möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar.
Ábendingar og tilboð
Til að tryggja að þú getir nýtt þér
símann þinn og þjónustu honum
tengda til hins ýtrasta færðu ókeypis,
sérsniðin textaskilaboð frá Nokia.
Skilaboðin innihalda ábendingar, góð
ráð og stuðning.
Veldu stillingar > Nokia-áskrift >
Ábendingar og tilboð til að hætta að
fá þessi skilaboð.
Til að hægt sé að veita ofangreinda
þjónustu eru farsímanúmerið þitt,
raðnúmer símans og tiltekin auðkenni
áskriftarinnar send til Nokia þegar
síminn er notaður í fyrsta skipti.
Sumar eða allar þessar upplýsingar
kunna einnig að vera sendar til Nokia
þegar hugbúnaður er uppfærður.
Þessar upplýsingar má nýta á þann
hátt sem er tilgreindur í stefnu um
gagnaleynd sem finna má á
www.nokia.com.
Rafhlöður og hleðslutæki
Um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið er ætlað til notkunar með
BL-4U endurhlaðanlegri rafhlöðu.
Hugsanlega verður hægt að fá aðrar
gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta
tæki. Notið alltaf rafhlöður frá Nokia.
Tækið er ætlað til notkunar þegar það
er hlaðið með eftirfarandi
hleðslutækjum: AC-11 . Nákvæmt
tegundarnúmer Nokia hleðslutækis
ins getur verið mismunandi gerðum
innstungna, sem auðkenndar eru með
E, X, AR, U, A, C, K, B eða N.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu
nokkur hundruð sinnum en að því
kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal-
og biðtími er orðinn mun styttri en
eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu.
Öryggisatriði
Alltaf skal slökkva á tækinu og
aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð. Þegar
hleðslutæki eða aukabúnaður er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.
Þegar hleðslutækið er ekki í notkun
skal taka það úr sambandi við
98

rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki
má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í
sambandi við hleðslutæki þar sem
ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.
Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni
smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu
frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of
mikill hiti eða kuldi draga úr endingu
og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri
eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að
starfa tímabundið.
Skammhlaup getur orðið fyrir slysni
þegar málmhlutur kemst í snertingu
við málmrendurnar á rafhlöðunni, til
dæmis þegar vararafhlaða er höfð í
vasa. Skammhlaup getur valdið
skemmdum á rafhlöðunni eða
hlutnum sem veldur tengingunni.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar
sem þær geta sprungið. Farga skal
rafhlöðum í samræmi við staðbundin
lög og reglugerðir. Skila skal þeim í
endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki
skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna,
merja, beygja, gata eða tæta
rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka má
vökvinn ekki komast í snertingu við
húð eða augu. Gerist það skal þegar í
stað hreinsa svæði sem komast í
snertingu við rafhlöðuna með vatni
eða leita læknisaðstoðar.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að
setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga
að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn
eða aðra vökva, eða bleyta hana.
Rafhlöður geta sprungið ef þær
skemmast.
Aðeins skal nota rafhlöðuna og
hleðslutækið til þess sem þau eru
ætluð. Röng notkun eða notkun
ósamþykktra rafhlaða eða
ósamhæfra hleðslutækja getur valdið
eldhættu, sprengingu eða haft aðra
áhættu í för með sér og öll ábyrgð og
samþykktir kunna þá að falla niður. Ef
þú telur að rafhlaðan eða
hleðslutækið hafi skemmst, skaltu
fara með það til þjónustuvers til
skoðunar áður en þú heldur áfram að
nota það. Aldrei skal nota skemmda
rafhlöðu eða hleðslutæki.
Hleðslutækið skal aðeins nota
innandyra.
Viðbótaröryggisupplýsingar
Hringt í neyðarnúmer
1
Gæta skal þess að kveikt sé á
tækinu.
2
Athugaðu hvort nægilegur
sendistyrkur er fyrir hendi.
99

Einnig kann að vera nauðsynlegt
að gera eftirfarandi:
• Settu SIM-kort í tækið.
• Slökktu á símtalatakmörk
unum sem eru virkar í tækinu,
svo sem útilokun, föstu
númeravali og lokuðum
notendahópi.
• Gætið þess að flugsniðið sé
ekki virkt.
• Taktu skjá og takka tækisins
úr lás, hafi þeim verið læst.
3
Ýttu endurtekið á hætta-
takkann þar til heimaskjárinn
birtist.
4
Númeravalið er opnað með því
að velja .
5
Sláðu inn opinbera
neyðarnúmerið fyrir
viðkomandi svæði. Númer
neyðarhringinga eru breytileg
eftir stöðum.
6
Styddu á hringitakkann.
7
Gefðu nauðsynlegar
upplýsingar með eins
nákvæmum hætti og hægt er.
Ekki má slíta símtali fyrr en að
fengnu leyfi til þess.
Mikilvægt: Kveikja skal bæði á
hringingum um farsímakerfið og
internetið, ef tækið styður símtöl um
internetið. Tækið reynir bæði að koma
á neyðarsímtölum í farsímakerfinu og
um þjónustuveitu netsímtala. Ekki er
hægt að tryggja tengingar við hvaða
skilyrði sem er. Aldrei skal treysta
eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að
ræða bráðnauðsynleg samskipti, t.d. í
bráðatilvikum.
Lítil börn
Tækið og aukabúnaður þess eru ekki
leikföng. Í þeim geta verið litlir hlutir.
Þá skal geyma þar sem lítil börn ná ekki
til.
Lækningatæki
Notkun búnaðar sem sendir frá sér
útvarpsbylgjur, þar með talin notkun
þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega
vel varin. Hafið samband við lækni eða
framleiðanda lækningatækisins til að
fá upplýsingar um hvort það sé
nægilega varið fyrir ytri
útvarpsbylgjum.
Ígrædd lækningatæki
Framleiðendur lækningatækja mæla
með því að 15,3 sentímetra (6 tommu)
lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss
tækis og ígrædds lækningabúnaðar,
eins og gangráðs eða ígrædds hjarta
rafstuðstækis til þess að komist sé hjá
hugsanlegri truflun í lækningabúnað
100

inum. Einstaklingar með slíkan búnað
ættu:
•
Alltaf að halda tækinu í meira en
15,3 sentímetra (6 tommu)
fjarlægð frá lækningatækinu.
•
Ekki að bera tækið í brjóstvasa.
•
Halda þráðlausa tækinu að
eyranu sem er fjær
lækningatækinu.
•
Slökktu á þráðlausa tækinu ef
einhver grunur er á truflunum.
•
Fylgja skal leiðbeiningum
framleiðanda lækningatækis
ins.
Ef þú hefur spurningar um notkun
þráðlausa tækisins með ígræddum
lækningabúnaði skaltu hafa samband
við heilbrigðisstarfsfólk.
Heyrn
Viðvörun: Þegar höfuðtólið er
notað getur það skert heyrn á
umhverfishljóðum. Ekki skal nota
höfuðtólið þar sem hætta getur
stafað af.
Tiltekin þráðlaus tæki geta truflað
sum heyrnartæki.
Nikkel
Yfirborð þessa tækis inniheldur ekki
nikkel.
Vernda skal tækið gegn
skaðlegu efni
Vírusar og annað skaðlegt efni hafa
áhrif á tækið. Gera skal eftirfarandi
varúðarráðstafanir:
•
Fara skal með gát þegar
skilaboð eru opnuð. Þau geta
innihaldið skaðlegan hugbúnað
eða skaðað tækið eða tölvuna á
einhvern annan hátt.
•
Fara skal með gát þegar
tengibeiðnir eru samþykktar,
vafrað er á netinu eða efni er
hlaðið niður. Ekki skal
samþykkja Bluetooth-tengingar
frá aðilum sem ekki er treyst.
•
Aðeins skal setja upp og nota
þjónustu og hugbúnað frá
aðilum sem er treyst og sem
veita nægilegt öryggi og vörn.
•
Setja skal upp vírusvarnar
hugbúnað og annan öryggis
hugbúnað í tækinu og tölvum
sem tengjast við það. Notaðu
einungis eitt vírusvarnarforrit í
einu. Ef fleiri eru notuð getur
það haft áhrif á afkastagetu og
101

virkni tækisins og/eða
tölvunnar.
•
Ef opnuð eru foruppsett
bókamerki eða tenglar að
netsíðum þriðju aðila skal gera
viðeigandi varúðarráðstafanir.
Nokia leggur hvorki stuðning
sinn við né tekur ábyrgð á slíkum
síðum.
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg
mörk útvarpsbylgna við notkun í
hefðbundinni stöðu við eyrað eða
þegar það er haft að minnsta kosti 1,5
sentímetra (5/8 úr tommu) frá
líkamanum. Ef taska, beltisklemma
eða hald er notað þegar tækið er borið
á líkamanum við notkun ætti slíkur
búnaður ekki að innihalda málm og
halda ætti tækinu að minnsta kosti í
þeirri fjarlægð frá líkamanum sem
nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár
eða skilaboð þarf góða tengingu við
símkerfið. Sending gagnaskráa eða
skilaboða getur tafist þar til slík
tenging er tiltæk. Fylgið
ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum
þar til sendingu er lokið.
Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á
rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum,
séu þau ekki rétt upp sett eða ekki
nægilega varin, svo sem
rafeindastýrða eldsneytisgjöf,
rafeindastýrð hemlakerfi (með
læsivörn), rafeindastýrða
hraðastýringu og loftpúðakerfi.
Frekari upplýsingar er að finna hjá
framleiðanda bílsins eða tækja
búnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að setja
tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning
eða viðgerð kann að valda hættu og
ógilda ábyrgðina. Ganga skal
reglulega úr skugga um að allur
þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu
sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má
geyma eða flytja eldfima vökva,
lofttegundir eða sprengifim efni í
sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukabúnað með því. Hafa skal í huga
að loftbúðar blásast upp af miklu afli.
Ekki koma tækinu eða fylgihlutum
fyrir á lofpúðasvæðinu.
Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar
sem kann að vera sprengihætta, svo
sem við eldsneytisdælur á
bensínstöðvum. Neistaflug á slíkum
svæðum getur valdið sprengingu eða
102

eldi og haft í för með sér slys og jafnvel
dauðsföll. Virða skal takmarkanir á
eldsneytisstöðvum, svæðum þar sem
geymsla og dreifing eldsneytis fer
fram, efnaverksmiðjum eða þar sem
verið er að sprengja. Svæði þar sem
kann að vera sprengihætta eru oftast
auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á
meðal eru svæði þar sem ráðlegt er að
slökkt sé á vél bifreiðar, í farrýmum
skipa, í efnageymslum eða við
efnaflutninga og þar sem efni eða
agnir, s.s. ryk, sót eða málmduft, gæti
verið í lofti. Hafa skal samband við
framleiðendur ökutækja sem nýta
fljótandi svartolíugas (própan eða
bútan) til að komast að því hvort nota
megi tækið í grennd við þau.
Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir
viðmiðunarreglur um áhrif af
útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og
móttökutæki. Það er hannað með tilliti
til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar
viðmiðunarreglur mæla með. Þessar
viðmiðunarreglur voru þróaðar af
óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og
innihalda öryggismörk sem ætlað er
að tryggja öryggi allra, óháð aldri og
heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um
útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er
notuð mælieiningin SAR (Specific
Absorption Rate). Efri mörk SAR,
samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP,
eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að
meðaltali á hver 10 grömm af
líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar
í hefðbundnum notkunarstöðum
þegar tækið sendir af mesta leyfða
styrk á öllum mældum tíðnisviðum.
Raunverulegur SAR-styrkur tækis í
notkun getur verið lægri en
hámarksgildið, þar sem tækið er
hannað til að nota aðeins þann styrk
sem þarf til að ná sambandi við
símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á
styrkinn, t.d. hversu langt notandinn
er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP
er hæsta SAR-gildi fyrir notkun
tækisins við eyra 1,37 W/kg .
Notkun aukahluta og aukabúnaðar
getur valdið því að SAR-gildið sé
annað. SAR-gildi kunna að vera
breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna
og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um
SAR má finna í upplýsingum um vörur
á www.nokia.com.
103